Í áfanganum er lögð áhersla á að þroska listræna upplifun nemandans og þá möguleika sem bjóðast til þess að koma skynjun hans/hennar yfir í listrænt form/listaverk. T.d. er unnið með ljós, myndvörpun, hljóð og rytma, bæði í gegn um hlustun/skynjun og framkvæmd. Gerðar eru tilraunir með myndbandstökur og úrvinnslu þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
möguleikum sínum til þess að njóta listrænnar upplifunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vera í samvinnu við vinnslu listrænna verkefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla upplifun sinni á listrænan hátt
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá