Í áfanganum vinna nemendur sjálfir stuttmynd. Áhersla er lögð á sköpun og sjálfstæð vinnubrögð. Lok áfangans miða að því að fara á hæfileikakeppni starfsbrauta með atriði sem nemendur eru stoltir af.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu stuttmyndar
vinnuferlinu frá upphafi til enda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna að sameiginlegu verkefni með samnemendum
nýta þann búnað sem þarf til stuttmyndagerðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá