Í áfanganum fær nemandi að kynnast undirstöðum forritunar. Áhersla er lögð á að leysa ýmsar þrautir með því að útbúa einfalda kóða og fá nemendur að prufa sig (orsök og afleiðing) áfram skref fyrir skref. Nemandi öðlast þannig aukna færni í rökhugsun og sköpunarhæfni og hæfni til gagnrýnnar hugsunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig mismunandi kóðar hafa áhrif á forritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa einfalda kóða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér einfalda forritun til gagns og gamans
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá.