Megináhersla áfangans er að auka lífsgæði nemandans í að tjá sig á skilvirkan og uppbyggilegan hátt. Áhersla er á að efla nemandann í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverju sinni. Notast verður við fjölbreytt viðfangsefni sem stuðla að því að styrkja sjálfstraust nemenda að eiga val til að hafa áhrif á daglegt líf sitt. Markmiðið er að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr að nú þegar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skilvirkum samskiptaleiðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta tjáð eigin skoðanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hafa áhrif á daglegt líf sitt
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá.