Unnið endurnýtingu úr allskonar pappírs/pappa efnum s.s. umbúðum, pappír, bókum og öðru slíku sem nýst gæti við að búa til nýja hluti úr gömlum efnivið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hagnýtingu og möguleikum sem felast í endurvinnslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla og vinna úr allskyns pappírsefnum og beita viðeigandi áhöldum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna á sjálfstæðan hátt, njóta og upplifa
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá.