Í áfanganum er fjallað um uppeldis- og menntunarfræði sem fræðigrein, rætur hennar, sögu og hagnýtingu. Lögð er áhersla á að efla skilning á mikilvægi uppeldis og menntunar og að nemendur öðlist hæfni til að takast á við störf sem tengjast uppeldi og menntun.
FÉLV1SJ06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mótunaraðilum uppeldis og menntunar í samfélaginu
sérstöðu þeirra aðila og stofnana sem eru mótandi fyrir uppeldi og hvað þeir eiga sameiginlegt
kenningum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
margvíslegum könnunum á uppeldi og menntun
mikilvægi þeirra sem starfa með börnum og unglingum
aðalatriðum í sögu uppeldis og menntunar
mikilvægi siðareglna þeirra sem starfa með börnum og unglingum og siðfræði þeirra sem umgangast þau
störfum leikskólakennara og annarra starfsmanna í leikskólum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
túlka margvíslegar kannanir tengdar uppeldi og menntun
greina á milli tilfinningalegs mats og faglegs mats á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
skoða innra starf leikskóla og setja fram til kynningar
beita einföldum kenningum í uppeldis- og menntunarfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja sjálfur gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs í uppeldi barna
geta hagnýtt sér kenningar í raunhæfum verkefnum
meta siðferðileg álitamál í tengslum við uppeldi og menntun