Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1612359985.83

    Yndislestur
    ÍSLE2YN02
    66
    íslenska
    yndislestur
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Í áfanganum gefst nemendum kostur á að kynna sér margvísleg skáldverk í heimi bókmennta. Nemendur velja af lista þrjár bækur sem þeir lesa yfir önnina. Engin tímasókn er en nemendur gera grein fyrir verkunum í einkaviðtölum við kennara.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar
    • því hvernig skáldsögur endurspegla líf og samfélag
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig í ræðu og riti um skáldsögur af ýmsum toga
    • átta sig á meginefni texta
    • taka þátt í umræðum
    • endursegja efni
    • tileinka sér góðar lestrarvenjur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina texta og draga ályktanir
    • vera gagnrýninn á efni
    • bæta og dýpka lesskilning
    • njóta lesturs
    • auka skilning á mannlegu atferli í gegnum lestur skáldsagna