Helstu efnisþættir eru rökaðgerðir, sannmengi, hæfar, línan, fleygboginn, hringurinn, skurðpunktur grafa, frumhugtök og frumsendur Evklíðskrar rúmfræði, hornaföll, flatarmál, og horn við hring. Vigrar eru skilgreindir og einföldustu eiginleikar þeirra skoðaðir.
Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
STÆR2AL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
rökaðgerðum, sannmengjum og hæfum
eiginleikum línu, fleygboga og hrings í hnitakerfi
skurðpunktum tveggja grafa í hnitakerfi
frumhugtökum rúmfræðinnar
frumsendunum um samsíða línur og einshyrnda þríhyrninga og reglum sem leiða af þeim
hornaföllum af hvössum hornum
hornum við hring, og flatarmáli einfaldra forma
vigurhugtakinu og reglum tengdum því
skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
afleiðslukerfum og mikilvægi skilgreininga og sannana í stærðfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota rökaðgerðir
finna og túlka eiginleika línu, fleygboga og hrings í hnitakerfi
teikna gröf jafna í hnitakerfi og finna skurðpunkta þeirra
leysa rúmfræðileg verkefni og þrautir
hagnýta hornaföll af hvössum hornum
reikna út hallatölur og lengdir vigra
nota vigrasamlagningu, innfeldi og blandað margfeldi
leysa vigur upp eftir tveim vigrum
finna þvervigur vigurs
vera nákvæmur í útreikningum og svörum
nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki, sviga og gráðumerki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir, m.a. með því að setja upp jöfnur
klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita einföldum samsettum röksemdum
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.