Í áfanganum verður fjallað um 1500 ára sögu Rómverja sem skópu heimsveldið sem
lagði grunninn að vestrænni menningu. Gerð verður grein fyrir uppgangi Rómverja
sem stórveldis og þróun þeirra til eins mesta heimsveldis sem sögur fara af og áhrif
Rómverja á mótun og þróun vestrænnar menningar og ríkja verða greind og skýrð.
Meðal annarra umfjöllunaratriða verða samfélag, menning, listir, trúarbrögð,
stjórnkerfi, byggingarlist, tækni og hernaður Rómverja á ólíkum tímabilum og ítarlega
fjallað um einstök tímabil í sögu Rómverja frá látlausu upphafi við Tíberfljót á 6. öld. f.
Kr. til endaloka austrómverska ríkisins árið 1453, þar sem áhrifamiklum persónum,
atburðum og einkennum hvers tímabils í sögu Rómverja verða gerð greinargóð skil.
SAGA1MU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu atburðum í sögu Rómaveldis
stéttaskiptingu og samfélagslegum einkennum ólíkra tímabila í sögu Rómaveldis
efnahagskerfi og efnahagslegum einkennum ólíkra tímabila
atvinnuháttum og tækniþróun Rómverja
menningarlegum og trúarlegum þáttum í sögu Rómverja
landvinningum og hernaðartækni Rómverja
stjórnkerfi, stjórnarháttum og réttarkerfi Rómaveldis
helstu persónum í sögu Rómaveldis og áhrifum þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sagnfræðilegan texta á íslensku og ensku um efni áfangans
afla sér upplýsinga um efni áfangans, greina þær og setja í sögulegt samhengi
meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
nýta sér internetið og bókasöfn til þess að afla sér dýpri fræðilegrar þekkingar á ýmsum efnisþáttum áfangans
beita sagnfræðilegum aðferðum við úrvinnslu og skráningu heimilda
tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans, rökræða efnið og geta miðlað því á fjölbreyttan máta
beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi sögulegra atburða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
koma söguþekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreytilegum hætti
geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um efni áfangans
gera sér grein fyrir orsökum og ástæðum fyrir útþenslu og landvinningum Rómveldis
greina og meta ástæðurnar fyrir falli og endalokum Rómaveldis
geta ályktað um orsakasamband atburða í víðu sögulegu samhengi
skilgreina einkenni heimsveldis Rómverja út frá stjórnarfarslegum, efnahagslegum, samfélagslegum, hernaðarlegum og menningarlegum þáttum og geta borið saman við einkenni heimsvelda á síðari tímum
meta menningarlegt framlag Rómverja til síðari tíma samfélaga.