Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Unnið er með orðaforða sem tengist daglegu lífi, umhverfismálum, ferðamennsku, menntakerfi, tækni og vísindum. Áhersla er lögð á að hver nemandi byggi upp orðaforða og þekkingu sem tengist eigin áhugasviði og framtíðaráformum og kynni sér aðstæður og möguleika í hverju landi fyrir sig. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi munnlegra kynninga og minni ritunarverkefnum. Í þessum áfanga er talþjálfun í brennidepli og skilningur á mæltu máli er aukinn með heimsóknum gesta sem koma og segja frá sínu námi á Norðurlöndum á dönsku, sænsku og norsku. Áfanginn er próflaus en verkefni unnin á önninni eru metin til einkunna.
DANS2ML03 og DANS2LR04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska/norræna menningu
orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
helstu hefðum við uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og algengustu orðasambönd sem einkenna það
lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
nýta ritaða texta á mismunandi hátt
lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, bregðast við og tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
geta talað lipurlega og með nægilega góðum framburði, hrynjandi og áherslum til að vel skiljist
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um efni sem hann hefur kynnt sér