Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1613388175.79

    Diffrun og heildun
    STÆR3GX05(MA)
    114
    stærðfræði
    Diffrun og heildun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    MA
    Helstu efnisþættir eru diffrun og helstu diffrunarreglur, línulegar nálganir, stofnföll og helstu heildunarreglur. Áhersla er lögð á að taka fyrir hagnýt dæmi sem tengjast diffrun og heildun.
    STÆR3FX05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • diffrun og helstu diffrunarreglum
    • línulegum nálgunum
    • afleiðum ýmissa falla
    • hagnýtingu diffrunar
    • stofnföllum
    • helstu heildunarreglum
    • hagnýtingu diffrunar og heildunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • diffra algengustu gerðir falla
    • beita helstu diffrunarreglum
    • finna línulega nálgun falls í punkti
    • reikna stofnföll fyrir algengustu gerðir falla
    • beita helstu heildunarreglum
    • leysa hagnýt verkefni er tengjast diffrun og heildun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og geta valið aðferð sem við á hverju sinni
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
    • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausn yrtra verkefna
    • leysa þrautir með skipulegum leitaraðferðum og uppsetningu jafna
    • klæða yrt verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
    • fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • geta beitt einföldum samsettum röksemdum
    • geta rakið sannanir í námsefninu og greint hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.