Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1616667073.97

    Skíðaþjálfun, grunntækni og útbúnaður
    SKÞJ3TÆ05
    2
    Skíðaþjálfun
    Grunntækni og útbúnaður
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er að mestu verklegur þar sem áhersla er lögð á grunntækni og útbúnað í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbrettum. Í áfanganum er farið yfir uppbyggingu og þróun útbúnaðar, grunntækni hverrar greinar fyrir sig og nemendur þjálfa ýmsa tæknilega þætti. Jafnframt er nemendum kennd almenn umhirða og viðhald á eigin útbúnaði. Nemendur þurfa að taka þátt í skipulagðri skíða/snjóbretta þjálfun hjá viðurkenndu íþróttafélagi eða sérhæfðum þjálfara að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Grunntækni sinnar íþróttagreinar
    • Helstu hugtökum sem tengjast tækniatriðum greinarinnar
    • Þeim undirbúningi sem þarf til að stunda íþróttina
    • Grunnatriðum í viðhaldi á útbúnaði og mikilvægi reglulegs viðhalds
    • Útbúnaði sem þarf til að standast kröfur greinarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Framkvæma helstu tækniatriði sinnar greinar
    • Sjá um undirbúning og viðhald á eigin útbúnaði fyrir æfingar og keppni
    • Útbúa æfingadagbók
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Greina og meta eigin tækni og annarra og koma með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
    • Taka ábyrgð á að eigin búnaður sé í góðu ástandi fyrir æfingar og keppni
    • Nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í sinni íþrótt
    • Geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni, áhuga og sjálfstæði.