Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1619529264.61

    SAGA2US05
    None
    saga
    Saga, miðlun, sköpun, upplifun
    í vinnslu
    2
    5
    Með snjalltæki sem verkfæri segir nemandinn sögu persónu, atburðar eða fyrirbæris. Allur heimurinn og allur hinn samfelldi sögulegi tími er undir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim möguleikum til hljóð- og myndvinnslu sem felast í snjalltækjum
    • almennum aðalatriðum mannkynssögu, sögu Vesturlanda og Íslandssögu
    • handritsgerð og hvernig handritið skilar hugmynd til endanlegrar afurðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðferð snjalltækja og annarra þeirra tækja sem nýtast við gerð hlaðvarpa og myndbanda.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir smærri atriðum í formi hlaðvarps eða myndbands
    • skrifa handrit fyrir stærri atriði, t.d. stutta þætti fyrir útvarp og sjónvarp
    • framleiða 10 til 15 mín hlaðvarp eða myndband sem byggir á handriti
    • vinna sjálfstætt á öllum stigum ferlisins frá hugmynd til endanlegrar afurðar
    • vinna með öðrum á öllum stigum ferlisins frá hugmynd til endanlegrar afurðar
    Tilgreint í áfangalýsingu hverju sinni.