Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623324880.27

    Matur og menning frá öðrum löndum
    HEIS1MM02
    12
    Heimilisfræði á sérnámsbraut
    Matur og menning
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn fjallar um mat og matarmenningu ólíkra menningarsvæða. Nemendur fræðast um sögu og uppruna matarins og hvernig hefðir, menning, trúarbrögð, landsvæði og fleira getur haft áhrif þar á. Nemendur kynnast fjölbreyttu hráefni og þjálfast í að matreiða rétti frá ýmsum löndum. Lögð er áhersla á að nemendur beri virðingu fyrir menningu og hefðum annarra þjóða. Nemendur fá þjálfun í undirbúningi, framkvæmd og frágangi við eldamennsku. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtakinu matarmenningu og hversu misjöfn hún getur verið
    • sögu þeirra landa sem unnið er með hverju sinni
    • uppruna matvæla
    • mikilvægi hefða í mismunandi löndum
    • umburðarlyndi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
    • því að fylgja framandi uppskriftum
    • meðhöndlun, umgengni og meðferð matvæla
    • góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa úr og nota mismunandi uppskriftir frá ólíkum löndum og menningu
    • beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
    • nota óhefðbundin og ný hráefni á mismunandi hátt
    • skoða eigin neysluvenjur með tilliti til neysluvenja fólks í öðru löndum
    • vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
    • leggja á borð og ganga frá eftir borðhald.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kynnast nýjum matarhefðum og nýrri matarmenningu
    • matbúa nýjar og framandi uppskriftir frá öðrum löndum
    • smakka og borða nýjan og framandi mat frá öðrum löndum
    • vera meðvitaður um eigin neysluvenjur og geta borið þær saman við aðrar
    • nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
    • sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
    • fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
    • finna uppskriftir eftir ólíkum leiðum
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
    Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.