Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623332180.74

    Rúmfræði
    STÆS1RF02
    26
    Stærðfræði á sérnámsbraut
    Rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Þessi áfanginn leggur áherslu á að vinna með mælingar líkt og þyngd, lengd, flatarmál, ummál og rúmmál. Nemendur læra að nýta sér metrakerfið við verkefnin. Markmið áfangans er að verkefnin geti m.a. nýst nemendum á ferðalögum, við matreiðslu og mælingar í nánasta umhverfi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mælingum
    • metrakerfinu og samhenginu milli eininga í mælikvörðunum
    • meðferð hjálpartækja (síma, tölvu, vasareiknis)
    • að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • ýmsum spilum og þrautum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota algeng stærðfræðitákn
    • vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
    • beita grunnreikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
    • nota hjálpartæki (síma, tölvu, vasareikni, forrit)
    • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
    • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
    • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
    • nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.
    Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á munnlegar og skriflegar umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og samnemenda sinna.