Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623333207.74

    Stærðfræði daglegs lífs
    STÆS1DL02
    26
    Stærðfræði á sérnámsbraut
    Daglegt líf
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er lögð áhersla á stærðfræði sem gagnast nemendum í daglegu lífi. Leitast er við að tala um stærðfræðina til að auka skilning nemenda á efninu. Nemendur fá þjálfun í tölvunotkun í tengslum við námið og skila verkefnum m.a. á rafrænu formi. Í áfanganum er stefnt að því að byggja upp sjálfstraust nemenda gagnvart stærðfræðinni. Unnið er að því að nemendur þroski tímaskyn sitt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
    • meðferð peninga
    • meðferð hjálpartækja (síma, tölvu, vasareiknis)
    • að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • spilum í spilastokki
    • ýmsum spilum og þrautum
    • klukku.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota algeng stærðfræðitákn
    • vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
    • beita grunn reikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
    • nota hjálpartæki (síma, tölvu, vasareikni, forrit)
    • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
    • fylgjast með tímanum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
    • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
    • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
    • nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.
    Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á munnlegar og skriflegar umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og samnemenda sinna.