Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623338680.2

    Almenn brot og tugabrot
    STÆS1BR02
    28
    Stærðfræði á sérnámsbraut
    Almenn brot, tugabrot
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Helsta markmið áfangans er að byggja ofan á þekkingu nemenda á almennum brotum og tugabrotum. Nemendur nota tölvu og vasareikni við verkefnavinnu ásamt verkefnum í Stoðkennaranum.  Í áfanganum er lagður grunnur að skipulögðum vinnubrögðum, röksemdafærslu og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum brotum
    • tugabrotum
    • meðferð hjálpartækja
    • að finna mismunandi aðgerðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • spilum í spilastokki
    • ýmsum spilum og þrautum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota algeng stærðfræðitákn
    • vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
    • beita grunnreikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
    • nota hjálpartæki
    • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    • setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
    • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
    • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
    • nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.
    Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á munnlegar og skriflegar umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og samnemenda sinna.