Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623405409.7

    Umhverfi, búsvæði og byggingar
    ENSS1UB02
    25
    Enska á sérnámsbraut
    byggingar, búsvæði, umhverfi
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á umhverfið, bæði manngert og náttúrlegt. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfstæði til að afla sér upplýsinga um fjölbreytni heimsins og vekja áhuga á umhverfi og náttúru. Áhersla er á að nemendur kynni sér, í gegnum manngerðar byggingar og búsvæði, líf og tilveru fólks og dýra erlendis og á Íslandi. Með verkefnavinnu velta nemendur fyrir sér umhverfi og menningu í eigin landi og öðrum löndum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða í tengslum við efni áfangans
    • að skilja samtal á myndbandi
    • greiningu fyrirmæla frá kennara á ensku
    • lestri texta sem nýtist í áfanganum
    • mismunandi híbýlum, náttúrulegum og manngerðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka þátt samræðum
    • lesa og skilja texta og vinna verkefni tengd honum
    • nýta sér orðaforða sem tengist híbýlum og byggingum
    • tjá sig munnlega um skoðanir sínar, ræða málefni líðandi stundar og halda uppi samræðum
    • halda kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka megininnhald lesinna texta
    • nýta orðaforðann sem áfanginn byggir á
    • halda kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
    • auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
    • nýta sér læsi í víðu samhengi.
    Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.