Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623418733.68

    Lífsleikni með áherslu á samfélagsmiðla, fjölmiðla og líðandi stund
    LÍSÉ1SF04
    5
    Lífsleikni á sérnámsbraut
    fjölmiðlar, samfélagsmiðlar
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Áfanginn fjallar um samfélagsmiðla, fjölmiðla og dægurmál. Notkunarmöguleikar, kostir og gallar miðlanna eru teknir fyrir. Fylgst er með fréttum líðandi stundar, fjallað um fjölmiðla sem fjórða valdið og hvaða þýðingu það hefur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu samfélagsmiðlum og notkunarmöguleikum þeirra
    • helstu tegundum fjölmiðla
    • samfélagslegum gildum, siðfræði, mannréttindum og jafnrétti
    • hugtakinu tjáningarfrelsi
    • leiðum til að geta aflað sér upplýsinga um málefni líðandi stundar
    • mikilvægi upplýstrar umræðu og skoðanaskipta
    • gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
    • hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita gagnrýnni hugsun
    • forðast hættur samfélagsmiðla
    • beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
    • horfa gagnrýnið á auglýsingar og taka sjálfstæða afstöðu til auglýsinga
    • nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
    • draga aðalatriði út mismunandi fréttatilkynningum og endursegja
    • nýta sér fjölmiðla og samfélagsmiðla sér til gagns og/eða gamans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér læsi í víðu samhengi
    • taka þátt í samfélagi sem er í sífelldri þróun
    • lesa í aðstæður og beita viðeigandi samskiptareglum
    • meta upplýsingar um samfélagsleg málefni líðandi stundar
    • vera meðvitaður um kosti og hættur samfélags- og fjölmiðla
    • tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
    • nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýnin hátt
    • átta sig á framsetningu efnis í fjölmiðlum og gagnsemi fjölmiðla.
    Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.