Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1624365169.78

    Grunnur hraðferð B
    STÆS1RE04
    33
    Stærðfræði á sérnámsbraut
    Algengar reikniaðgerðir
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í þessum áfanga er fjallað um algebru, jöfnur og grunnhugtök úr tölfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa upp og læra ákveðin grunnatriði í stærðfræði með það fyrir augum að byggja upp sjálfstraust nemenda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu grunnhugtökum í tölfræði
    • notkun og úrvinnslu ýmissa tölfræðigagna
    • aðgerðum á heilum tölum, forgangsröðun aðgerða og notkun sviga
    • undirstöðuatriðum í algebru og hvernig bókstafir eru notaðir til þess að tákna stærðir.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna úr og nýta tölfræðigögn
    • einfalda algebrustæður
    • liða einfaldar þáttastærðir
    • þátta einfaldar liðastærðir
    • leysa einfaldar jöfnur með óþekktri stærð.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota tölfræði í tengslum við raunveruleg úrlausnarverkefni
    • nálgast lesefni á sjálfstæðan hátt
    • lesa einfalda stærðfræðitexta
    • geta unnið eftir fyrirmælum
    • láta skýringar fylgja með útreikningum
    • vanda alla framsetningu og nota stærðfræðitákn á viðeigandi hátt.
    Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á munnlegar og skriflegar umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og samnemenda sinna.