Viðfangsefni áfangans eru hnitakerfi, veldi og rætur, algebra, ójöfnur, annars stigs jöfnur, fleygbogar, föll og margliður, mengi og rökfræði.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
hnitakerfinu, veldum og rótum, meðferð algebrubrota og mengjum
yrðingarökfræði og sanntöflum
fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings til einföldunar stærðtákna og útreiknings og til að leysa 1. og 2. stigs jöfnur og einfaldar vísisjöfnur
vinna með hnitakerfið, ferla beinna lína og fleygboga
beita veldareglum við ýmiss konar umritanir
leysa einfaldar ójöfnur
nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
setja upp sanntöflu fyrir samsettar yrðingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur