Í áfanganum læra nemendur á uppsetningu streymis og hvernig á að miðla frá viðburðum tengdum rafíþróttum. Grunn í hljóðvinnslu og miðlun hljóðs ásamt því að nemendur kynnast grunnatriðum viðburðarstjórnunar og halda úti viðburðum í tengslum við rafíþróttir.
RAFÍ1RÍ05(11)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Streymi
Grunnatriðum hljóðvinnslu
Miðlun
Grunnatriðum viðburðastjórnunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Öðlast leikni í því að setja upp streymi.
Undirbúa viðburði samkvæmt viðburðastjórnun.
Miðla hljóði og upptökum.
Halda úti viðburðum í rafíþróttum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja upp mót eða keppnisviðburði þar sem reynir á streymi.
Setja á fót viðburði í rafíþróttum.
Taka upp og miðla hljóðupptökum og myndefni.
Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum sem byggir á stöðugri endurgjöf til nemandans. Námsmat er fjölbreytt, verklegt, skriflegt, viðburðastjórnun og jafningjamat.