Markmið áfangans er að nemendur bæti árangur sinn í hreyfingu, sem íþróttafólk, þjálfarar og í hinu daglega lífi með því að nýta hugræna eiginleika.
Farið verður yfir helstu áhrifaþætti heilbrigðis, hugtakið heilsulæsi kynnt, og hvernig má nota þá nálgun til að ná markmiðum sínum. Fræðilegur grunnur áfangans er meðal annars sóttur í jákvæða sálfræði.
Í áfanganum er farið yfir helstu viðfangsefni íþróttasálfræðinnar og fjallað um algenga geðheilsuþætti sem hafa áhrif á frammistöðu, s.s. hugræna þætti, hugsun, sjálfsmynd, áhugahvöt, streitu, kvíða og einbeitingu. Þannig fá nemendur yfirsýn á þætti sem hafa jákvæð og neikvæð áhrif á frammistöðu.
Markmiðssetning er kennd og fjallað um kosti þess að nota skynmyndir og setja sér markmið og leiðir að markmiðum sínum, til að ná árangri. Að auki farið í fleiri þætti sem þarf til að ná árangri í íþróttum, s.s. slökun og slökunaraðferðir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim hugrænu þáttum sem hafa áhrif á frammistöðu
Mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
Mikilvægi jákvæðrar hvatningar í íþróttum
Áhrifum streitu og kvíða á frammistöðu
Heilsulæsi
Íþróttasálfræði
Mikilvægi markmiðssetningar á íþróttaárangur og í hinu daglega lífi
Einbeitingu, slökun og slökunaraðferðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Vinna markvisst með sjálfstraust og eflingar á sjálfsmynd
Koma auga á og minnka streitu og kvíða
Nýta sér hugræna þjálfun
Nýta sér heilsulæsi til að lifa heilbrigðum lífsstíl
Setja sér skammtíma- og langtímamarkmið
Nýta sér slökunaraðferðir til að ná stjórn á spennustigi í íþróttum og í daglegu lífi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Bæta sig í sinni íþrótt og í daglegu lífi
Nota skynmyndir í íþróttum og daglegu lífi
Geta náð betri árangri sem íþróttaþjálfari eða keppandi
Ýta undir innri áhugahvöt hjá sjálfum sér og öðrum
Nýta andlegan undirbúning fyrir keppni og álag
Setja sér árangursrík markmið
Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá