Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1631023787.89

    Íþróttafræði þjálfun
    ÍÞRF2ÞB05
    21
    íþróttafræði
    Skipulag þjálfunar, stefnumótun, þjálfun barna.
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    11
    Í þessum áfanga er fjallað um íþróttaiðkun barna, þroskaferil, hreyfiþroska og í framhaldinu um hlutverk þjálfara. Nemendur læra grunnatriði þjálffræði, um þol, kraft, liðleika og tækni. Farið er í undirstöðu kennslufræði og skipulags. Nemendur læra einnig um heilbrigt líferni og íþróttameiðsli. Þá er fjallað um hlutverk þjálfarans og hann sem fyrirmynd.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eðli íþrótta hjá börnum
    • þroskaferli barna
    • mikilvægi fjöldaþátttöku og jafnréttis allra til að njóta þjálfunar
    • helstu þáttum þjálffræði
    • íþróttameiðslum og forvörnum
    • skipulagi íþróttaþjálfunar
    • mikilvægi samskipta við foreldra og aðra sem tengjast íþróttum barna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • undirbúa og framkvæma íþróttatíma fyrir börn að 12 ára aldri
    • meta hvers konar æfingar henta yngstu iðkendum í íþróttum
    • bregðast við íþróttameiðslum
    • undirbúa íþróttatíma þannig að sem minnst hætta verði á óhöppum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir íþróttir sem þeir þekkja
    • beita fjölbreyttum þjálfunaraðferðum
    • skipuleggja þjálfun þannig að allir fái jafna athygli og kennslu við hæfi
    • haga starfi sínu sem þjálfari svo að enginn verði fyrir einelti
    • búa til góðan liðsanda í hópnum sem þeir þjálfa
    • fylgjast með að hópurinn standi saman bæði utan og innan íþróttaæfingar
    Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta eru skriflegt lokapróf. Nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð. Margs konar hópverkefni í tímum.