Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1632395770.16

    Húsamíði-Kynningaráfangi
    HÚSA1KY05(SS)
    1
    Húsasmíði
    Kynningaráfangi
    for inspection
    1
    5
    SB
    Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum nám í húsasmíði og skyldum byggingagreinum þannig að þeir þekki grunnnám byggingargreina auk þeirra námsleiða sem því tengist. Nemendum er kennt að nota ýmis verkfæri sem notuð eru í trésmíði og hvaða verkfæri skal velja út frá þeim verkum sem verið er að vinna að. Þá er einnig farið í vinnuvernd og hvað ber að varast við notkun tækja og áhalda í trésmíði.
    Hafa lokið grunnskóla
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig iðnnám í byggingagreinum er uppbyggt
    • notkunarmöguleikum verkfæra og tækja
    • mælingum og yfirfærsla á þeim á vinnslustykki
    • þeim hættum sem geta skapast við ranga meðhöndlun verkfæra og tækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja viðeigandi verkfæri til einfaldra verka í smíði
    • lesa út út teikningu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna með ýmis handverkfæri og rafmagnsverkfæri sem tilheyra trésmíði
    • smíða einfalda hluti úr tré eftir teikningu
    Námsmat skal fara fram eftir eftirfarandi viðmiðum. Virkni í tímum, samvinna með öðrum nemendum, vinnubrögð við smíði.