Nemendur munu setja upp sínar eigin Raspberry PI vélar sem þeir munu svo nota til að stjórna mótorum, ljósnóðum og fleiru.
Við munum setja vélina í fjarstýrðan bíl, og getur vélin þ.a.l. stjórnað bílnum. Við munum svo skrá okkur inn í vélina í gegnum aðra Raspberry PI tölvu með notkun SSH. Þar með stjórnum við bílnum fjarrænt í gegnum internetið. Nemendur munu læra að búa til Python scriptur sem geta greint hvað það er sem bíllinn er að sjá sem og tekið ákvarðanir fyrir bílinn byggðar á því.
Þekking í Linux og Python nýtist vel í þessu námskeiði.
FORR3PH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Tölvukerfum almennt
Linux
Þróun róbóta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skrifa tölvuforrit sem stjórna vélum
Setja saman vélar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Þróa vélmenni framtíðarinnar
Sjá tækifæri í kringum þessa nýju tækni
Vera virkur þáttakandi í sjálfvirknivæðingunni sem blasir við