Haldið verður áfram að vinna í forritunarmálinu Javascript til að búa til gagnvirkar vefsíður. Farið verður dýpra í forritunarmálið og nemendur fá að kynnast Javascript ramma (e. framework) til að hanna vefsíður. Unnar verða vefsíður með notkun ramma þar sem vefsíður eru skiptar niður í minni hluta (e. component). Nemendur munu nota forritasafn til að ná í gögn af netinu og birta það á vefsíðunni hjá sér. Kynnt verður fyrir nemendum grunnatriði í Git og hvernig það einfaldar utanumhald utan um verkefni.
VFOR2GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Flóknari hlutum í Javascript
Grunnatriði í ramma (e. framework) í Javascript
Notkun minni hluta (e. component) á vefsíðum
Grunnatriðum í Git
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Forrita flóknari hluti í Javascript
Forrita vefsíðu með ramma (e. framework)
Hanna vefsíðu í minni hlutum (e. components)
Geyma verkefni á vefþjónustu með Git
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Búið til vefsíðu frá grunni sem birtir gögn af netinu
Búið til gagnvirka vefsíðu sem nær í og uppfærir gögn
Vinna verkefni í hópum í gegnum vefþjónustu með Git