Í þessum grunnáfanga vinna nemendur á kerfisbundinn hátt með akrýl málningu ýmist á pappír eða striga. Lögð er áherla á að nemendur öðlist þekkingu á blöndunareiginleikum. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif. Í lokin vinna nemendur markvisst með fjölbreytta liti og litablöndun með það í huga að kanna möguleika sína á persónulegri tjáningu í málverki.
Verkefni útskýrð og lögð fyrir. Einstök heimaverkefni. Skissubók – nemendur vinna sjálfstætt í skissubók heima og í tímum. Nemendur fari a.m.k. einu sinni á myndlistarsýningu og skila verkefni um sýninguna.
Grunnáfangi, enginn undanfari.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
Að beita litum á fjölbreyttan hátt á ýmis konar efni
Tóni, blæ, ljósmagni og litablöndun
Nýtingu litaskalans á áhrifaríkan hátt í einföldum myndum
Greiningu áhrifa lita og litasamsetningar í mismunandi samhengi
Greiningu með vísan til táknfræði, á hvaða möguleg áhrif samsetning lita og forma getur haft
Kenningum/lögmálum litafræðinnar, litahringnum, andstæðum litum, heitum og köldum litum
Litgreiningu
Áhrifum ljóss og skugga á liti
Blæbriðgum litar
Einlit
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Blanda liti og ná fram mismunandi tónum
Nýta sér hin ýmsu efni til myndlistar
Leita sér heimilda og nýta sér þær
Beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
Finna og greina liti í umhverfinu
Sjá andstæða liti í skuggum
Framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
Nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
Nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
Geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit
Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla lög á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Skilyrði til að ljúka áfanganum er að nemandi klári öll verkefni og skili á réttum tíma.