Farið er nánar í hlutbundna forritun og nemendur vinna lokaverkefni þar sem byggt er á þekkingu frá fyrri áföngum. Nemendur búa til vefsíðu frá grunni eða með notkun ramma (e. frameworks). Nemendur læra að nota hluti sem hjálpa til við uppsetningu og viðhald gagnagrunna fyrir vefsíðu ásamt því að kynnast að senda gögn í rauntíma til notenda.
VFOR3BE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Skipulagsaðferðum fyrir stór forritunarverkefni
Gagnagrunnsuppsetningu fyrir stórt verkefni
Uppsetningu vefsíðu á server
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Setja upp skipulagsskjal fyrir tímabil sem verkefni er unnið á
Setja upp prótótýpur fyrir verkefni
Setja upp myndrit fyrir uppsetningu gagnagrunns fyrir verkefni
Velja sér réttu verkfærin út frá völdu verkefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Vinna sjálfstætt að stóru forritunarverkefni og ná að útfæra hugmynd
Skipulagninu á tíma fyrir litla og stóra hluti tengda verkefni
Taka hugmynd, útfæra hana og koma henni út fyrir alla til að nota