Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1635244298.06

    Rúmfræði með GeoGebru
    STÆR2RG05
    125
    stærðfræði
    Rúmfræði með GeoGebru
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er unnið í stærðfræðiforritinu Geogebra með lausnir rúmfræðilegra verkefna. Fjallað er um hugtök Evklíðskrar rúmfræði, rúmfræðilegar færslur og hnitarúmfræði. Farið er í nokkur undirstöðuhugtök Evklíðskrar rúmfræði, meðal annars skilgreiningar á hæð, miðlínu, helmingalínu horns og miðþverli, teikningar á þessum línum inn á mynd, skilgreiningar á helstu hugtökum varðandi flatarmyndir og flatarmál, reglur um miðpunkt umritaðs hrings og innritaðs hrings í þríhyrning og rúmfræðilegar færslur, s.s speglun, snúning og hliðrun.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum Evklíðskrar rúmfræði
    • teikningu flatarmynda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota tölvu við að leysa rúmfræðileg vandamál
    • nota tölvu við að setja lausnir viðfangsefna skipulega fram
    • nota tölvu við að skrá röksemdafærslur og sannanir
    • nota tölvu við að teikna flatarmyndir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.