Bandaríki Norður Ameríku eru sett í brennidepil í þessum áfanga og sérstaklega reynt að brjóta niður staðalímyndir um þennan suðupott ólíkra menningarheima. Hér nýtist félagsfræðin vel enda munu nemendur sökkva sér í mannlífsrannsóknir út frá sögu lands og þjóðar, stjórnskipulagi, menningu og listum. Farið verður í nokkur þemu s.s. sögu, stjórnmál, tónlist, bókmenntir og ýmis álitamál reifuð. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun, gagnrýnan lestur og virka þátttöku í umræðum.. Vert er að taka fram að í þessum áfanga eru gerðar kröfur um talsverðan lestur, grúsk og þátttöku í kennslustundum.
ENSK2FV05 eða ENSK3NE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum viðhorfum og gildum í BNA og geti skoðað þau í ljósi þeirrar menningar og tungu sem þeir hafa alist upp við
helstu áföngum í sögu lands og þjóðar
helstu hefðum og reglum um uppsetningu skipulags á rituðu máli (greinamerkjasetningu og skiptingu í efnisgreinar)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
máta eigin menningu og tungu við bandaríska menningu og enska tungu
lesa fjölbreytta texta í formi bókmennta, texta almenns eðlis og aðra texta sem tengjast efni áfangans
rita styttri og lengri texta byggða á efni áfangans
tjá sig um valin málefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál en þó um sérhæfð málefni s.s. stjórnmál, sögu og málefni tengd stjórnkerfi BNA svo dæmi séu tekin
tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta sér það á mismunandi hátt
nota viðeigandi orðalag í samskiptum (kurteisi)
skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem speglast gagnrýnin hugsun
hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
beita árangursríkri námstækni t.d. við að lesa krefjandi texta
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.