Í áfanganum fá nemendur að læra um þróun lífs á jörðinni. Nemendur læra að þekkja einkenni lífvera og skyldleika þeirra. Þá fá nemendur tækifæri til að kynnast fylkingum lífvera og flokkunarfræðinni sem liggur að baki. Tegundamyndun verður skoðuð sérstaklega og nemendur þjálfast í að lesa tölulegar og myndrænar upplýsingar sem tengjast þróunarfræði.
LÍFF1GF04 eða LÍFF2GR05. Má taka samhliða.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum þróunarfræðinnar
flokkunarkerfi og einkenni fylkinga
drifkrafti þróunar
hugmyndum um náttúrulegt val
erfðafjölbreytni og líffræðilegri fjölbreytni
skyldleika tegunda og tegundamyndun
helstu kenningum um þróun lífvera
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa upplýsingar út frá tölulegum gögnum og myndum
vinna með hugtök og geta nota þau
greina upplýsingar og vinna með heimildir
flokka lífverur í helstu fylkingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
temja sér sjálfstæð vinnubrögð
greina og meta upplýsingar á mismunandi formi
nýta samvinnu til að skoða flóknari viðfangsefni
útskýra og rökstyðja eigin hugmyndir í máli og myndum
gera sér grein fyrir samspili þróunarfræði og annarra náttúrufræðigreina
Áfanginn er verkefnamiðaður og verður námsmat í formi leiðsagnarmats (símat). Ekkert lokapróf heldur lokaverkefni þar sem nemendum gefst kostur á að skoða þróun ákveðinnar tegundar.