Hefur þú áhuga á heilsu og heilbrigði og nýtur þess að lesa góða bók?
Þessi áfangi hentar vel nemendum sem vilja lesa sér til ánægju og um leið efla heilsulæsi sitt. Nemendur velja sér fimm bækur af bókalista í samráði við kennara til að lesa yfir önnina og er listinn byggður upp af ýmsum fræði- og sjálfshjálparbókum þar sem kafað er í ýmislegt sem tengist heilsu og heilbrigði. Áfanginn byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum og skipulagshæfileikum nemenda þar sem nemendur lesa bækurnar á tilteknum tíma og gera síðan kennara grein fyrir þeim í einkaviðtölum. Ekki er hefðbundin kennsla en á tveggja til þriggja vikna fresti, eða fimm sinnum á önn, þarf nemandinn að undirbúa viðtalstíma. Þar þarf hann að vera tilbúinn að greina frá efni bókanna og svara spurningum kennara um þær. Unnin eru 2 verkefni upp úr bókunum sem dreifast yfir önnina.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu áhrifaþáttum heilbrigðis svo sem: næringu, hreyfingu, svefni og geðrækt
aðferðum til að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl
helstu áhættuþáttum lífsstílssjúkdóma í vestrænu samfélagi
heildstæðum áhrifum á heilsu og lífsstíl, samspili menningar, umhverfis og einstaklingsábyrgðar
greina styrkleika sína og veikleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til gagns og gamans ýmsar gerðir ritaðs máls og fjalla um inntak þeirra
taka þátt í umræðum um heilsutengd málefni, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
leita áreiðanlegra upplýsinga er varða heilsu og taka sjálfstæða afstöðu til þeirra
yfirfæra þekkingu sína á áhrifaþáttum heilbrigðis á umhverfi sitt og lífsstíl
taka upplýstar og sjálfsstæðar ákvarðanir varðandi heilsu
líta gagnrýnum augum á helstu stefnur og strauma í samfélaginu er varðar heilsu
nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita gagnrýninni hugsun og koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
taka upplýstar ákvarðanir þegar kemur að heilsu og stuðla að betri lífsgæðum sínum og nær samfélagsins
meta sinn eigin lífsstíl og umhverfi og áhrif þeirra þátta á heilsu
hafa áhrif á samfélag sitt og umhverfi í átt að bættri lýðheilsu
lesa sér gagns og ánægju og vera í leiðinni gagnrýninn í hugsun
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá