Áhersla verður á að skoða heilsu einstaklings í víðu samhengi út frá líf-, sál- og félags módelinu (The Biopsychosocial Model). Í því samhengi verður velt upp hinum ýmsu aðstæðum, atburðum og samspili sem geta haft afgerandi áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu einstaklings sem og lífsgæði. Áherslan verður á tengingu við þá jákvæðu þætti sem geta viðhaldið vellíðan og góðum lífsgæðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að beita vísindalegum aðferðum við rannsóknir
helstu kenningum um geðheilbrigði
sértækum hugtökum og kenningum
framlagi greinarinnar til vísinda og samfélags
siðferði við rannsóknir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita helstu grunnhugtökum heilsusálfræðinnar
útskýra helstu hugmyndir sem uppi eru um heilbrigði
lýsa hefðbundnum stefnum í sálfræði sem tengjast geðheilbrigði
skoða samhengi andlegar heilsu og lífsgæða
nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
lesa í og skilja niðurstöður mikilvægra rannsókna í sálfræði
miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sækja þekkingu úr öðrum greinum til aukins skilnings á viðfangsefninu og yfirfæra þekkingu á aðrar greinar til þess að sjá vísindalegt samhengi
vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
afla, meta og nota heimildir á viðurkenndan hátt
sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.