Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1644925200.37

    Akrýlmálun
    MYNL2AM03
    27
    myndlist
    Akrílmálun
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Nemendur dýpka þekkingu sína með verkefnum tengdum lita og formfræði, myndbyggingu og fjarvídd, ásamt því að kynnast mismunandi áferð og fjölbreyttum verkfærum fyrir akrýlmálun á pappír,viðarplötu og striga.Hugmyndavinna í vinnubók. Ætlast er til þess að nemandinn verði læsari á menningu samtímans og þá möguleika sem í boði eru.
    LIGR1KY03 EÐA MYNL1GT03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Skapandi lausnaleit í gegnum tilraunavinnu.
    • Ólíkum aðferðum akrýlmálunar til sköpunar.
    • Að sjá fleiri og opnari möguleika í vinnuferlinu.
    • Sjálfum sér og hugsun í skapandi vinnu ásamt verklagi og umgengni með efni og áhöld.
    • Hvernig menning og listir tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun.
    • Gildi menningararfsins, hvort sem hann snýr að heimabyggð eða heiminum öllum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nýta sér skissubók í hugmyndavinnu.
    • Vinna með akrýlmálningu á pappír, striga og viðarplötu.
    • Nota mismunandi tækni og áhöld/verkfæri fyrir málun.
    • Virkja hugmyndaflugið og þar með sköpunarkraftinn.
    • Geta notið lista og skapandi starfs á margvíslegu formi.
    • Skiptast á skoðunum og eiga uppbyggileg samskipti.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Mála akrýlverk með fjölbreyttum aðferðum, efnum og áhöldum.
    • Vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfæra þær í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar.
    • Tileinka sér skapandi lausnahugsun í verkefnavinnunni.
    • Geta tjáð sig um eigin verk og annarra með opnum huga.
    Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.