Meginefni áfangans er rúmfræði. Efnisþættir sem teknir eru fyrir í áfanganum eru: Rúmfræði, kynning á frumhugtökum rúmfræðinnar, hornasumma þríhyrnings, hlutföll í þríhyrningum og regla Pýþagórasar. Flatarmál og rúmmál. Horn við hring. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum. Mælieiningar. Sannanir og rökfræði. Í áfanganum er lögð áhersla á skipulögð vinnubrögð, röksemdafærslur og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.
Að hafa lokið grunnskóla með fullnægjandi hætti að mati skólans.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flatarmáli og rúmmáli
hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningum
Pýþagórasarreglunni
hornasummu þríhyrnings
hlutföllum í þríhyrningum
horni við hring
metrakerfinu (metrar, fermetrar, rúmmetrar) og mælieiningum
sönnunum og rökfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa rúmfræðileg vandamál
reikna horn og hliðar í þríhyrningum
reikna flatarmál og rúmmál og vinna með mælieiningar
reikna stærðir í einslægum þríhyrningum
finna ferilhorn, miðhorn, utanverð og innanverð horn
skilja og vinna með hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum
vinna með og nota Pýþagórasarregluna
nota röksemdafærslu við sannanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um stærðfræðileg viðfangsefni og setja úrlausnir sínar fram skriflega á skiljanlegan og snyrtilegan hátt
skilja merkingu helstu stærðfræðitákna og hugtaka í námsefninu og geti útskýrt þau
nýta þekktar formúlur, vinna með þær og finna óþekkta stærð út frá þekktum stærðum og reglum
velja aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.