Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1646407520.46

    Evrópsk matarmenning
    MOME2EM05
    7
    Matur og menning
    Evrópsk matarmenning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum fræðast nemendur um mat, matarhefðir og matarmenningu þriggja samstarfslanda. Áfanginn er hluti af Erasmusverkefni þriggja skóla sem heitir “Let´s eat culture”. Nemendur afla sér fróðleiks um matar- og innkaupahefðir og áhersla er lögð á að nemendur fræðist um matar- og menningarsögu landanna. Stefnt er á ferð til Lanzarote þar sem unnið verður með ríkjandi matarhefðir og innkaupavenjur, eldað verður úr afurðum úr héraði sem og með heimafólki, farið verður í skoðunarferðir á markaði og í fyrirtæki. Einnig verður tekið á móti erlendum nemendum hér heima þar sem farið er í samskonar verkefni. Í ferðinni halda nemendur dagbók sem verður notuð sem hluti af rafrænni matreiðslubók. Í lok áfangans setja nemendur saman eina heildarmatarbók sem verður deilt með samstarfsskólum í Erasmusverkefninu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • matarhefðum á svæðinu sem heimsótt er
    • hvernig svæðisbundnir réttir eru eldaðir og hvaða hráefni eru notuð
    • matarinnkaupum í landinu sem heimsótt er
    • matar- og menningarsögu svæðisins sem heimsótt er
    • að lesa sér til um og taka þátt í að elda rétti
    • grunnþáttum í mismunandi hefðum og matarmenningu
    • uppruna hráefnis sem nemendur eru að nota
    • að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • að meta eigið vinnuframlag og annara
    • menningarmun nemenda sem koma í heimsókn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér upplýsingar um matar- og menningarsögu
    • skoða ólíka matarmenningu og ræða um hana
    • taka þátt í samræðum um mismunandi matarmenningu og hefðir, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
    • búa til fróðleiksmola um framandi mat og matarhefðir sem birtar verða í ferðadagbók
    • lesa uppskriftir, fylgja þeim eftir og fjalla um megininntak þeirra
    • þýða á erlend tungumál
    • tala erlend mál við samnemendur í verkefninu
    • efla skilning sinn á menningu- og matargerð úr öðru landi
    • að upplifa, skynja og smakka það sem hann tekur þátt í að framreiða
    • skoða hráefni sem til er í umhverfinu og elda það
    • geta unnið saman í teymi, skipta með sér verkum og skiptast á
    • geta sett fram hugmyndir sínar um íslenska rétti og erlenda og bregðast við viðmælendum
    • sýna gestrisni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá skoðanir sínar og tilfinningar um mat og matarmenningu
    • vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk matar
    • sýna nokkurt sjálfstæði við það að framreiða mat undir leiðsögn kennara
    • tjá sig um eigin upplifun við framreiðslu matar við aðra viðmælendur með almennri ígrundun og samanburði
    • geta sett upp rafræna matreiðslubók á erlendu tungumáli á myndrænan hátt
    • leysa úr viðfangsefnum í samstarfi við aðra
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • sýna umburðarlyndi og virðingu gagnvart öðrum menningarheimum
    • meta eigið vinnuframlag
    • vera umburðalyndur og sýna gestrisni
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á aga, metnað, virðingu, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.