Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1646649000.14

    Söngleikir
    SKTL1SL05
    9
    Skapandi tónlist
    Söngleikir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn miðar að því að gefa nemendum yfirlit og betri þekkingu á söngleikjum. Farið verður meðal annars í hugtakið söngleikur, sögu, fjölbreytileika, þróun og flytjendur. Horft/hlustað verður á úrval af söngleikjum og nemendum gefinn kostur á að skila skapandi verkefnum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugtakinu söngleikur
    • Grunni sögu söngleikja á Íslandi og erlendis
    • Mismunandi stíl og þróun söngleikja
    • Flytjendum og öðrum sem að koma að uppsetningu sýninga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Hlusta og horfa á söngleiki með skilningi á mismunandi stíl
    • Búa til og skila skapandi verkefnum byggðum á námsefni
    • Geta nýtt sér fjölbreytta miðla til þess að nálgast efni og upplýsingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Afla sér upplýsinga og þekkingar á mismunandi stíl flytjenda söngleikja og öðru námsefni
    • Búa til og skila skapandi verkefnum byggðum á námsefni
    • Tjá sig og taka þátt í samræðum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati.