Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1661421485.98

    Grunnáfangi í eðlisfræði á náttúruvísindabraut.
    EÐLI2GR05
    31
    eðlisfræði
    grunnáfangi í eðlisfræði á náttúruvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: mælingar og óvissumat, líkön, fræði og lögmál, hreyfing í einni vídd, vigrar og grafísk lýsing á hreyfingu, hreyfilögmál Newtons, þyngdarkraftur og núningskraftur, tengsl vinnu og orku, nokkrar orkumyndir og varðveislulögmál tengd þeim, skriðþungi.
    STÆR2LH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvað felst í vísindalegri aðferð
    • SI-kerfinu og SI-einingum stærða sem unnið er með
    • helstu hugtökum sem notuð eru í hreyfifræði og aflfræði.
    • helstu lögmálum ofannefndra greina, svo sem hreyfilögmálum Newtons og varðveislulögmálum vélrænnar orku og heildarorku.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
    • beita lögmálum og jöfnum úr námsefninu við að leysa verkefni af ýmsu tagi
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar