Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1664892469.6

    Ferðalag um eðlisfræði
    EÐLI2FE03
    32
    eðlisfræði
    Ferðalag um eðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er unnið með hugtök sem tengjast nútímaeðlisfræði. Efnisþættir eru til dæmis, tíminn, alheimurinn, geislun og skammtafræði. Nemendur fá skilning á eðli vísinda og kynnast vísindalegum vinnubrögðum, til að mynda í gegnum sögu vísindafólks sem voru í forgrunni við þróun kenninga á þeim sviðum sem rætt er um.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum sem tengjast tíma, stjarneðlisfræði, geislun og skammtafræði og fyrirbærum tengdum þessum efnisþáttum
    • sögu vísindafólks sem þróuðu kenningar í ofangreindum efnisþáttum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja fram eðlisfræðileg viðfangsefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    • greina þekkingu á umhverfinu á gagnrýninn hátt
    • velta upp spurningum um raunveruleikann og þekkingu fólks á honum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • tileinka sér nýjar hugmyndir á rökrænan hátt
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar