Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1665584367.41

    Vísindaleg vinnubrögð og náttúrufræðigreinar
    NÁTT2GR05
    11
    náttúrufræði
    grunnáfangi í náttúrufræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunaráfanga fá nemendur að kynnast náttúruvísindum á fjölbreyttan hátt. Má þar helst nefna líffræði (vistfræði, frumulíffræði, erfðafræði), efnafræði, umhverfisfræði, jarðfræði og vísindaleg vinnubrögð. Í áfanganum verða eftirfarandi efnisþættir kynntir: eðli vísinda, helstu skref vísindalegra aðferða, SI-einingakerfið, mælinákvæmni og markverðir stafir, vistfræði, flokkun lífvera, lífverur í vistkerfi, hringrás kolefnis, framvinda vistkerfa, heilkjarnafrumur, dreifkjarnafrumur, frumulíffæri og starfsemi þeirra, efnafræði, atómið og frumefni, lotukerfið, efnajöfnur og efnahvörf, eldfjöll og helstu gerðir þeirra, Surtsey og myndun hennar. Lögð er áhersla á að nemendur tengi þá þekkingu sem þeir öðlast í efnafræði, líffræði og jarðfræði við náttúru Íslands, umhverfi sitt og daglegt líf.
    STÆR2FF05 eða STÆR2FL02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • rannsóknaraðferðum í náttúru- og raunvísindum
    • helstu ferlum vistkerfa
    • starfsemi frumunnar og mismunandi gerðir
    • sambandi umhverfis og erfða
    • uppbyggingu atóms
    • uppbyggingu lotukerfisins
    • mismundi gerðum eldfjalla
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr þeim
    • skrifa skýrslur í tengslum við verklegar æfingar
    • búa til myndrit, m.a. línurit, og nota myndritin til að draga ályktanir
    • teikna upp fæðuvef og skilgreina flutning orku og efnis innan fæðuvefsins
    • skilgreina helstu hlutverk frumulíffæra
    • leysa einföld erfðadæmi
    • lesa efnajöfnur og stilla þær
    • aðgreina efni í frumefni, efnasambönd og efnablöndur
    • nota lotukerfi
    • þekkja til helstu eldstöðva Íslands og gerð þeirra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
    • tengja þekkingu sína í efnafræði, líffræði og jarðvísindum við umhverfi sitt og náttúru Íslands
    • segja frá og kynna vinnu sína fyrir öðrum
    • auka vísindalæsi
    Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.