Í áfanganum er lögð áhersla á: Mikilvægi næringar, heildræna heilsu, líkamsrækt, orkuþörf líkamans og íþróttasálfræði. Námið fer fram í staðkennslu, vendikennslu og verkefnum utan skólans þar sem lögð er áhersla á að nemendum vinni með fræðilegt efni áfangans á raunhæfan hátt.
HEIL2HH01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi næringar fyrir heilsu, heilbrigði og vellíðan
helstu flokkum næringaefna og viðeigandi orkuneyslu
útskýrt mikilvægi svefns, hvíldar og endurheimtar í samhengi við heilsu og árangur
geta útskýrt hvað felst í íþróttasálfræði og meginviðfangsefnum hennar
geta útskýrt hvað líkamsmat/próf eru og tilgang þeirra
fjölbreyttum leiðum til að nýta likams- og heilsurækt í daglegu lífi
möguleikum í umhverfi og náttúru til líkams- og heilsuræktar
neikæðum áhrifum áfengis-, tóbaks- og lyfjaneyslu á líkama og heilsu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tileinka sér hollt og fjölbreytt matarræði
lesa og skilja upplýsingar um næringu og næringarfræði
áætla eigin orkuþörf
stunda líkams- og heilsurækt á heilbrigðan hátt
nota íþróttasálfræði til að efla eigin áhugahvöt
nota fjölbreyttar aðferðir til að mæla líkamsástand (þol, styrk, liðleika og púls)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi á næringarinntöku
mæla og meta eigin styrkleika í líkams- og heilsurækt
taka þátt í umræðu sem snýr að næringu, matarræði, andlegri vellíðan og mælingum á líkamsþreki
takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi matarræði og lifnaðarhætti