Námskeiðið er framhaldsáfangi í fagorðaforða (academic vocabulary) til undirbúnings fyrir háskólanám. Unnið er með ritrýndar fræðigreinar á tilteknum fræðasviðum svo sem náttúruvísindum, félagsvísindum og hugvísindum. Farið er í orðstofna og myndun orða í ensku út frá t.d. latínu og grísku. Leitað er fanga í fagtímaritum og ritrýndum faggreinum af netmiðlum og gagnasöfnum. Nemendur fá tilsögn í heimildaleit fyrir rannsóknarvinnu á háskólastigi. Miðað verður við þarfir hópsins hverju sinni þar sem farið er nánar í orðaforða sem tengist væntanlegu námssviði nemenda við nám eftir stúdentspróf. Áfanginn skiptist í þrjár lotur. Í fyrstu lotunni er viðfangsefnið almennt, þar sem megináherslan er á myndun og notkun fagorða. Í annarri og þriðju lotu vinna nemendur einstaklingsverkefni þar sem skoðaður er orðaforði afmarkaðra sviða og greina á háskólastigi, s.s. hugvísinda, félagsvísinda, raunvísinda o.s.frv. Miðað er við að þessi einstaklingsverkefni séu í því fagi sem nemendur hafi hugsað sér að leggja stund á eftir stúdentspróf. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
ENSK3AC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fagorðaforða einstakra greina á háskólastigi
orðmyndun fagorða
rýndum fræðigreinum
heimildaleit og greiningu rýndra fræðigreina í bókum, tímaritum og rafrænum gagnasöfnum
APA ritunarstaðlinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja og greina fagorð og myndun þeirra
mynda fagorð
meta fræðigreinar með tilliti til áreiðanleika og hagnýts gildis
finna heimildir fyrir rannsóknarvinnu á háskólastigi
nota APA ritunarstaðalinn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér fræðigreinar á sínu sérsviði
umrita og gera útdrátt úr fræðigreinum
rita texta sem uppfyllir lágmarkskröfur um fræðilegan orðaforða
rita texta sem uppfyllir lágmarkskröfur um heimildanotkun samkvæmt APA staðlinum