Námskeiðið byggir á völdum verkum úr smiðju J.R.R. Tolkien. Unnið verður með texta Tolkiens, bæði skáldaðan og einkabréf sem hafa verið birt að honum látnum. Verk sem Tolkien horfði til í skáldsköpun sinni verða kynnt og nemendur kynna sér einnig bakgrunn og bera saman verur sem Tolkien skóp við það sem hafði áður birst í bókmenntaverkum. Einnig verður fjallað um túlkun verka Tolkiens í kvikmyndum Peter Jacksons. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
ENSK2UK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig Tolkien skapaði söguheim sinn
rithöfundinum J.R.R. Tolkien og bakgrunni hans
uppsprettum hugmynda og tungumáls Tolkiens
áhrifum Tolkiens á bókmenntir og kvikmyndir síðustu áratuga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja söguheim og persónur Tolkiens í samhengi við raunheim
greina stíl Tolkiens og málsköpun
greina samhengi verka Tolkiens við sögu og samfélag 20. aldarinnar
greina gildi verka Tolkiens fyrir samtímamenn hans og seinni kynslóðir
fjalla um verk Tolkiens og túlkun annarra á þeim á gagnrýninn og fræðilegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rita texta sem uppfyllir lágmarkskröfur um fræðilegan orðaforða
afla sér fræðilegra heimilda á gagnrýninn hátt
setja fram umfjöllun, munnlega og skriflega, þar sem dregin eru fram aðalatriði og rökstuðningur með nokkuð nákvæmum dæmum
taka þátt í skapandi og fræðilegum umræðum um Tolkien og verk hans.