Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu, siðum og samskiptavenjum ítölskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að styrkja þessa þætti lesa nemendur einfalda skáldsögu og gera ýmis verkefni út frá henni. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi A1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL)
ÍTAL1IA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
helstu grundvallarþáttum ítalska málkerfisins
Ítalíu og fengið aukna innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðarinnar
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli, uppástungur og stuttar frásagnir
skilja einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð og þátíð (núliðinni tíð) og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
fylgja söguþræði í einföldum bókmenntatexta
afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
geta sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
skrifa stutta texta í nútíð og þátíð (núliðinni tíð), svo sem einföld persónuleg bréf, skilaboð, boðskort og samtöl
nýta sér ýmis hjálpargögn í ítölskunáminu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál um kunnugleg efni
skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða, m.a. á netinu, í blöðum og tímaritum
tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
skrifa einfalda texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu.