Í þessum byrjunaráfanga í ensku er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Norður-Ameríku, fjallað verður um bandarískt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og ritunarverkefnum. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
bandarísku samfélagi
rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. inngangi með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fjölbreyttar gerðir texta
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig skýrt og hnökralaust munnlega um málefni sem hann hefur kynnt sér
tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
átta sig á helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
átta sig á ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð