Áfanginn er byrjunaráfangi og er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Frá fyrstu kennslustund eru nemendur þjálfaðir í að hlusta á frönsku og að bera fram einföld orð og setningar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í réttum framburði og er þeim þætti sinnt bæði með hlustun og talæfingum sem og útskýringum á hljóðkerfi frönskunnar. Þá er einnig lögð mikil áhersla á skilning á mæltu máli. Fljótlega eru einföld málfræðiatriði kynnt og þjálfuð jafnt og þétt eftir því sem viðfangsefni áfangans gefa tilefni til. Nemendur rita stutta texta. Áhersla er lögð á kynningar, tjáningu á eigin smekk sem og öflun upplýsinga. Frakkland er kynnt til sögunnar ásamt öðrum frönskumælandi málsvæðum og er bætt við þá þekkingu með ítarefni, t.d. tónlist og myndefni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
nokkrum helstu grundvallarþáttum fransks málkerfis svo sem framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
frönskumælandi löndum, sér í lagi Frakklandi, og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp
lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi viðkomandi og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem nemandinn þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
segja á einfaldan hátt frá sjálfum/sjálfri/sjálfu sér, fjölskyldu sinni og áhugamálum með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
geta skrifað stuttan, einfaldan texta um sig og sitt nánasta umhverfi, fyllt út einföld eyðublöð o.fl.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
beita mismunandi aðferðum til að skilja einfalda texta
taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni