Franska 3: Menning og staðhættir frönskumælandi landa, daglegt líf og ferðalög
FRAN1FC05
19
franska
hlustun og ritun. menning og staðhættir frönskumælandi landa, lesskilningur, tal
Samþykkt af skóla
1
5
Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Textar verða smám saman lengri og þyngri. Orðaforði er aukinn og nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum. Samhliða vinnu með aðalkennslubók vinna nemendur með fjölbreytt efni úr ýmsum áttum og auk þess einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Lýsingar á staðháttum, bæði í frönskumælandi löndum og á Íslandi koma við sögu. Hvatt er til aukins sjálfstæðis nemenda í vinnubrögðum og að þau nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið við upplýsingasöfnun.
FRAN1FB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
grundvallarþáttum franska málkerfisins
frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli, þ.m.t. formgerð og byggingu texta og vera meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem nemandi þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega
skilja texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
taka þátt í almennum samræðum um kunnugleg efni og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
segja frá á skýran hátt og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
skrifa samfelldan texta um ýmis efni sem unnið er með í áfanganum, t.d. lýsingar á stöðum og umhverfi og geta betur en áður dregið ályktanir og tjáð eigin skoðanir
nýta sér ýmis hjálpargögn í frönskunáminu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er mjög kunnuglegt
afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi
lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
takast á við flestar algengar aðstæður í almennum samskiptum og geta almennt bjargað sér á málinu
segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu og áætlunum
miðla á einfaldan hátt efni, bæði munnlega og skriflega