hlustun og ritun. menning og þjóðfélagsmál, lesskilningur, tal
Samþykkt af skóla
2
5
Í þessum áfanga er áfram unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, málfræðigrunnur er styrktur og orðaforði aukinn jafnt og þétt. Unnið er með efni af ýmsu tagi, s.s. rauntexta á mismunandi þyngdarstigi, hlustunar- og myndefni. Áfanginn er í ríkari mæli en áður þematengdur og meiri áhersla lögð á menningu og þjóðfélagsmál í frönskumælandi löndum, einkum með tilliti til ungs fólks. Nemendur vinna svokallað blokkarverkefni, þ.e. þau búa til frönskumælandi íbúasamfélag í blokk og æfa sig í allskonar samskiptum í hlutverkum íbúanna. Þarna gefst gott tækifæri til upprifjunar og þjálfunar í talaðri og ritaðri frönsku daglegs lífs. Leitast er við að gera blokkarlífið sem líflegast og raunverulegast með því að fylgjast með því sem er að gerast í viðkomandi borg og í þjóðfélaginu almennt. Einnig er unnið með þætti/kvikmynd(ir) og bókmenntatexta, t.d. léttlestrarbók eða smásögur og verkefni unnin út frá því efni. Nemendur eru áfram þjálfaðir í sjálfstæðum vinnubrögðum og fá meiri tækifæri en í grunnáföngunum til að vinna verkefni út frá eigin áhugamálum. Áfanginn er símatsáfangi og ekki er lokapróf. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi A2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
FRAN1FC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• ýmsum sérhæfðum þáttum í menningu og þjóðfélagsgerð Frakklands
• sérhæfðari þáttum franska málkerfisins (t.d. þátíð og einfaldri framtíð)
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans, þ.m.t. flóknari orðasamböndum en áður
notkun frönskunnar til að mæta hæfniviðmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja nokkuð vel þegar rætt er um málefni daglegs lífs eða málefni sem hann þekkir vel
greina aðalatriði í frásögn, sjónvarps- eða útvarpsefni sem fjalla um afmörkuð málefni
skilja betur en áður orð og orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talmál
skilja einfalda eða einfaldaða bókmenntatexta og hafa betra vald á að túlka þá en áður
skilja stuttar greinar t.d. í tímaritum, dagblöðum og á netinu um ýmis efni með hjálp orðabóka og uppsláttarrita og skima nokkuð þunga texta sem tengjast þemum áfangans þannig að hann skilji aðalatriðin
taka þátt í samtali um afmörkuð, undirbúin efni og geta betur en áður beitt málfari við hæfi hverju sinni
skiptast á skoðunum við aðra um framtíðaráform, framtíðarsýn og önnur málefni sem tengjast námsefninu og geta betur en áður rökstutt mál sitt
halda stutta og hnitmiðaða kynningu á efni sem hann hefur undirbúið fyrirfram
skrifa texta af fjölbreyttara tagi en áður um efni sem tengist viðfangsefnum áfangans
gera útdrátt eða eigin hugleiðingar út frá frásögn í greinum, bókmenntatextum o.fl.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, ef hann þekkir til efnisins og talað er nokkuð skýrt
tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og eiga auðveldara en áður með að túlka hann og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
tjá sig á nokkuð skýran hátt um ýmis almenn efni eða sérhæfðari efni sem hann hefur kynnt sér vel
skrifa flóknari og fjölbreyttari texta en áður um ýmis efni
skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, t.d. stuttri blaðagrein
nýta markvissar en áður upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíð