Áfanginn er svipaður að uppbyggingu og undanfarinn. Meginmarkmiðið er að nemendur lesi frönsku sér til ánægju og gangs og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þau hafa lesið og kynnt sér. Nemendur lesa ýmiss konar texta, svo sem skáldsögur, smásögur, myndasögur, tímaritsgreinar og fræðsluefni á netinu. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þau vinna með. Nemendur vinna sjálfstætt með textann hverju sinni og kynna niðurstöður í viðtali við kennara. Einnig gera nemendur skriflegar greinargerðir sem er svo safnað saman og skilað sem safnmöppu í lok áfangans. Áfanginn er símatsáfangi sem byggir á munnlegum og skriflegum verkefnum ásamt raunmætingu. Hægt er að velja hann sem 3 eða 5 einingar.
FRAN2YN03/05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, tímaritsgreinum og efni á netinu
þeim orðaforða sem er nauðsynlegur til að mæta markmiðum áfangans
mannlífi og menningu frönskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
greina nokkuð ítarlega og af talsverðu öryggi frá efni texta sem nemandi hefur unnið með, bæði munnlega og skriflega
taka þátt í samræðum um efnið, bregðast við óvæntum spurningum og setja fram eigin skoðanir
nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um margskonar efni sem nemandi hefur kynnt sér sjálfstætt og tjá eigin skoðanir
vinna sjálfstætt og skipulega
velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi og hafa trú á eigin kunnáttu